Norðurlandaráðsþing: Þingfundur
Á þriðja degi þingsins gera meðal annars samstarfsráðherrar Norðurlanda grein fyrir starfsemi ársins á þingfundi.
Tími: Klukkan 9–12 og 14–18
Staður: Þingsalur Ríkisdagsins
Aðgangur að þingfundinum á miðvikudeginum er heimill almenningi og skráðum fjölmiðlamönnum auk þess sem hann er sýndur beint og vistaður á vef sænska þingsins. Ræður eru túlkaðar á skandinavísku málin, íslensku, finnsku og ensku.
Um þing Norðurlandaráðs
Í ár gegnir Svíþjóð formennsku í Norðurlandaráði. Norðurlandaráðsþingið er því haldið í sænska þinginu dagana 27.–30. október.